
Dark Sky International [https://darksky.org/] eru samtök sem hafa það að markmiði að vernda nóttina fyrir ljósmengun. Með vottunarferli, sem felur í sér margra ára áætlun um viðhald opinberrar lýsingar í átt að stjörnuhiminsvænum lausnum og vitundarvakningu í samfélaginu um ljósmengun og áhrif hennar á náttúru og samfélög, hafa þau þegar komið hundruðum staða á heimskortið. Þessir staðir verða seglar fyrir stjörnuferðamennsku, sem er vetrarferðaþjónusta sem hægt væri að nýta mikið hér.
Fyrir aðeins einum og hálfum mánuði síðan tilkynnti sveitarfélagið Norðurþing áform sín um að verða vottaður stjörnugarður (vegna vetrarferðaþjónustu o.s.frv.): https://www.mbl.is/ferdalog/frettir/2025/10/21/nordurthing_gengur_til_lids_vid_darksky_internation/ . Við munum öll hagnast á þessari vottun: - ánægjulegri næturhiminn fyrir alla; - orkusparnaður; - vetrarferðaþjónusta vegna vottunar sem stjörnugarður.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation