
Eigi síðar en árið 2030 geti allir ferðast með öruggum sjálfbærum samgöngutækjum á viðráðanlegu verði á bættu vegakerfi. Lögð verði áhersla á betri almenningssamgöngur sem taka mið af fólki í viðkvæmri stöðu, konum, börnum, fötluðu fólki og öldruðum.
Kópavogsbær er í dag þekktur fyrir að leggja áherslu á bifreiðasamgöngur þannig að bitni um of á gangandi og hjólandi umferð. Dæmi um það eru hjólreiðaáætlanir sem ekkert hefur verið unnið með. Þá eru tiltölulega nýleg hverfi bæjarins eru alræmd fyrir að erfitt er að komast um þau nema í bíl, t.d. Dalvegur og Smáralind. Nú er tækifæri til að hífa upp um sig buxurnar og gefa sér feitt spark í rassinn. Gera stefnubreytingu í átt að sjálfbærum samgöngukerfum og hætta að vera 2. flokks sveitarfélag.
Almenningssamgöngur mættu vera mun betri innan Kópavogs. Það er ALLT of mikil áhersla á að íbúar Kópavogs noti bíl til að komast á milli staða. Margir göngustígar, sérstaklega í eldri hluta bæjarins eru úr sér gengnir og beinlínis slysahætta á mörgum þeirra.
Stefna ađ ađskilnađ göngu- og hjólastíga allsstađar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation